Furðulegt háttalag hunds um nótt Bókin sem ég las heitir ,,Furðulegt háttalag hunds um nótt’’ eftir Mark Haddon sem er fæddur árið 1962. Bókin er skrifuð út frá sjónarhorni einhverfs stráks, sem er mjög greindur en á erfitt með að tala við annað fólk, og hann myndskreytir bókina líka með ýmsum sniðugum myndum og oftast eru það útskýringamyndir. Mark Haddon hefur sjálfur unnið eitthvað með einhverfum börnum og mikið af fólki er sammála því hvernig hann lýsir ástandinu sem fylgir því að hugsa um svona börn. Bókin var gefin út árið 2003 í Bretlandi og vann hún tvenn verðlaun. Fyrst vann hún verðlaun árið 2003 sem besta bókin og svo vann hún verðlaun árið 2004 sem besta fyrsta bókin eftir höfund. Bókin er aðallega um þennan strák sem heitir Kristófer, hvernig hann glímir við sína erfiðleika og ýmsa atburði sem hann lendir í. Í fyrsta kaflanum er nefnt að hundur nágranna hans Kristófers hafi verið stunginn með garðkvísl og þannig nær höfundurinn nokkurn veginn strax athygli manns. Kristófer setur sér það markmið að leysa gátuna hver drap hundinn og skrifar þessa bók um það. Kristófer byrjar að snuðra og tala við fólk til að reyna komast að því hvað gerðist og á meðan hann er að vinna í því að þá rekst hann í aðra og stærri ráðgátu sem er kannski erfiðari fyrir hann að skilja. Það felst í því að hann kemst að því að pabbi hans faldi ýmislegt fyrir honum og hann hættir að treysta pabba sínum sem var svona stoðin í lífinu hans. Hann ákveður að fara til London því hann hefur ekki um annað að velja og það er erfitt fyrir strák eins og hann að ferðast frá Svíþjóð með lest til London. Hann merkir alla kaflanna eftir frumtölum en ekki hefðbundnum tölum sem er nokkuð áhugavert. Kristófer er mjög sérstakur. Hann trúir ekki á neitt yfirnáttúrulegt því allt verður að hafa útskýringu. Vísindi er svarið við öllu. Að hafa allt í röð og reglu veitir honum öryggiskennd. Hann vill engar óvæntar uppákomur og vill hafa daginn sinn fyrirfram ákveðinn svo hann viti nákvæmlega klukkan hvað eitthvað á að gerast og svoleiðis eins og til dæmis klukkan 17:49 stoppar strætóbíllinn fyrir utan húsið hans og klukkan 17:52 borðar hann nesti. Hann fælist allt sem er brúnt eða gult en rauður er jákvæður litur. Ef hann sér 3-5 rauða bíla í röð að þá verður dagurinn góður en ef hann sér 4 gula bíla í röð verður dagurinn svartur. Hann er mjög eftirtektarsamur og ef hann fer á nýjan stað að þá fær hann höfuðverki af því hann tekur eftir of mikið af nýjum hlutum því hugurinn hans ræður ekki við slíkt upplýsingaflæði. Hann er mjög gáfaður og mikið í bókinni er hann að skrifa svona smá tilgangslausa vitenskju eins og um stjörnurnar eða eitthvað um grísku. Honum gengur best í stærðfræði og það tengist sögunni mikið hvað varðar að þegar hann verður æstur og hræddur, eins og ef einhver snertir hann, að þá oftast róar hann sig með því að leysa ýmsar stærðfræðiþrautir. Hann segir líka alltaf satt. Það getur komið honum í vandræði því ef hann ætlar að reyna að ljúga að þá fer hugurinn hans að hugsa um of mikið af einhverju og hann fær lítið flog. Hann er í skóla fyrir sérstaka og er mjög náinn sálfræðingnum sínum sem heitir Shiobhan en annars talar hann ekki við mikið fólk því hann er hræddur við ókunnuga. Hann hefur líka mikinn áhuga á Sherlock Holmes og vitnar oft í hann. Hann vitnar líka mjög mikið í annað efni og stundum koma heilu kaflarnir af útskýringum sem tengjast sögunni eiginlega ekkert. Pabbi hans er frekar rólegur, miðað við að mamma hans Kristófers sló hann, og hugsar um Kristófer því hann sagði honum að mamma hans hefði dáið tveimur árum fyrr en maður kemst að því seinna í sögunni að það var eitthvað skrítið á bak við það. Hann missir stundum stjórn á skapi sínu þegar Kristófer óhlýðnast honum eða er erfiður og hann virðist drekka aðeins meira áfengi en er eðlilegt og á einum kafla lenda þeir, Kristófer og hann, í slagsmálum. Sagan gerist að mestu leiti í Swindon í Svíþjóð en líka eitthvað í London í Bretlandi. Swindon virðist ekki vera það stór bær miðað við söguna en Kristófer talar ekki við mjög mikið af fólkinu. Líklegast er innri tími svona um einn til tveir mánuðir en sagan flakkar svona aðeins til baka í fortíðina þegar mamma hans Kristófers bjó hjá honum og pabba hans og svo eru kaflar sem fylgja sögunni. Sagan gerist líka hugsanlega á árunum 1996 – 1997 því það koma fram bréf sem eru dagsett árið 1997. Mér fannst sagan alveg ágæt en mér leiddist þegar það komu kaflar sem voru ekki um neitt sérstakt. Til dæmis útskýringar á grískum orðum og eitthvað svo það var erfiðara fyrir mig að lesa söguna. Ég gæfi bókinni líklegast 3 / 5 stjörnum því hún var skemmtileg, fyndin og maður vildi halda áfram að lesa hana en það var ekki auðvelt með of miklum innskotum af einhverju gagnslausu sem tengdist sögunni ekkert.